- Skólinn
- Nám & kennsla
- Stoðþjónusta
- Frístundaheimilið
- Leikskólastig
- Foreldrar
- Hagnýtt
- Farsæld barna
Frístundaheimili grunnskólanna (Sumarfrístund), fyrir nemendur sem fara í 1. og 2. bekk í haust (börn fædd 2019 og 2018), verða opin frá 11. ágúst til skólasetningar. Markmiðin með þessari opnun eru m.a. að brúa bilið milli leik- og grunnskólagöngu nemenda, að aðlögun nýrra leikskólabarna geti hafist sem fyrst að hausti og að aðlaga tilvonandi 1. bekkinga í grunnskólann sinn.
Skráning er hafin og fer fram í gegnum www.mittreykjanes.is eða www.sumar.vala.is og er skráning fyrir þetta tímabil ótengd skráningu fyrir frístundaheimilin eftir að skólastarf hefst. Gert er ráð fyrir því að foreldrar séu búnir að skrá börnin sín fyrir 12. maí.
Opnunartíminn verður frá 09:00 – 15:00. Börnin fá hádegismat og síðdegisnesti.
*15. ágúst verður frístundaheimilið Stapaskóla lokað vegna námskeiðs hjá starfsfólki.
ATH! Foreldrar með systkini á leikskólum eða hjá dagforeldrum eru beðnir um að setja inn upplýsingar um systkin vegna fjölskylduafsláttar í reitinn annað.