Farsæld barna - samþætting þjónustu

Á Íslandi hafa ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021 tekið gildi. Þessi lög varða öll börn og ungmenni á Íslandi frá 0 - 18 ára aldurs. Meginmarkmið laganna er að búa til umgjörð sem stuðlar að því að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana.

Strax við fæðingu barns, eða eftir atvikum á meðgöngu, eiga foreldrar og börn rétt á þjónustu tengiliðar eftir því sem þörf krefur. Hlutverk tengiliðar er fyrst og fremst að veita upplýsingar, aðstoða foreldra og barn og styðja við samþættingu þjónustu á fysta stigi í samræmi við óskir foreldra og eða barns. Tengiliður er einstaklingur í nærumhverfi barnsins:

Tengiliðir Stapaskóla eru eftirfarandi: 

  • Pálína Hildur Sigurðardóttir er tengiliður á leikskólastigi, netfang palina.h.sigurdardottir@stapaskoli.is
  • Elísabet Sigríður Guðnadóttir er tengiliður á leikskólastigi, netfang elisabet.s.gudnadottir@stapaskoli.is
  • Rannveig J. Guðmundsdóttir er tengiliður á grunnskólastigi, netfang rannveig.j.gudmundsdottir@stapaskoli.is