- Skólinn
- Nám & kennsla
- Stoðþjónusta
- Frístundaheimilið
- Leikskólastig
- Foreldrar
- Hagnýtt
- Farsæld barna
Skólakeppni Stóru Upplestrarkeppninnar var haldin á sal Stapaskóla mánudaginn 20. febrúar. Keppnin er árlegur viðburður í starfi skólans, nemendur í 7. bekk hefja formlegan undirbúning upplestrar á Degi íslenskrar tungu. Nemendur eru hvattir til að lesa og æfa sig í vönduðum upplestri með það að markmiði að vera þátttakendur í keppninni sem haldin er ár hvert. Níu nemendur unnu sér rétt til þátttöku í skólakeppninni eftir bekkjarkeppni sem haldin var sl.þriðjudag.
Þeir níu nemendur sem unnu sér rétt til þátttöku í skólakeppninni voru:
Keppnin tókst einstaklega vel og voru nemendur mjög vel undirbúnir.
Dómarar í keppninnar í ár voru: Haraldur Axel Einarsson grunnskólafulltrúi Reykjanesbæjar, Guðný Björg Karlsdóttir aðstoðarskólastjóri Njarðvíkurskóla og Valgerður Guðbjörnsdóttir deildarstjóri við Stapaskóla.
Sigurvegarar keppninnar fá keppnisrétt á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem mun fara fram í Hljómahöll 9. mars nk.
Sigurvegararnir voru þær Íris Brynja Arnarsdóttir og Dagbjört Dóra Kristmannsdótir. Auk þeirra var Embla Dís Sighvatsdóttir valin sem varamaður en þær koma allar til með að halda áfram æfingum og undirbúa sig fyrir lokakeppnina.
Við óskum öllum keppendum til hamingju með vandaðan upplestur og hugrekki að standa fyrir framan fullan sal af fólki. Einnig þökkum við kennurum fyrir undirbúninginn og nemendum í sal fyrir gott hljóð og kurteisi.
Ísey Rún Björnsdóttir las upp texta en hún var einn af sigurvegurum í skólakeppni Stapaskóla 2022