Lúlli löggubangsi í heimsókn

Í heilsu- og forvarnarviku kom Krissi lögga með Lúlla löggubangsa í heimsókn á leikskólastig Stapaskóla.

Krissi sagði nemendum söguna um hann Lúlla og hvernig hann lærði að passa sig í umferðinni. Einnig var farið yfir mikilvægi þess að vera alltaf rétt spenntur í bílstólnum og að nota endurskinsmerki. Að endingu tók Krissi upp gítarinn og sungum við saman nokkur lög. Síðan fengu allir límmiða með kveðju frá Lúlla. Við þökkum Krissa og Lúlla kærlega fyrir komuna.

Hægt er að sjá fleiri myndir hér.