Lúlli löggubangsi í heimsókn

Í heilsu- og forvarnarviku kom Krissi lögga með Lúlla löggubangsa í heimsókn á leikskólastig Stapaskóla.

Krissi sagði nemendum söguna um hann Lúlla og hvernig hann lærði að passa sig í umferðinni. Einnig var farið yfir mikilvægi þess að vera alltaf rétt spenntur í bílstólnum. Að endingu tók Krissi upp gítarinn og við sungum nokkur lög.