Hvatningarverðlaun fræðsluráðs 2021

Fræðsluráð Reykjanesbæjar efnir árlega til hvatningarverðlauna fyrir verkefni í skólastarfi sem þykja skara fram úr og vera öðrum til eftirbreytni. Verðlaunin eru veitt til einstaka kennara, kennarahópa og starfsmanna í leikskólum, grunnskólum og tónlistarskóla Reykjanesbæjar sem standa að baki verkefnunum.
 
Allir sem vilja geta sent inn ábendingar um áhugaverð verkefni sem hafa nýst skólasamfélaginu og hafa verið unnin á yfirstandandi skólaári. Skila þarf inn tilnefningum fyrir 28. maí nk.
 
 
Hérna er hlekkur á eyðublaðið til þess að tilnefna: