- Skólinn
- Nám & kennsla
- Stoðþjónusta
- Frístundaheimilið
- Leikskólastig
- Foreldrar
- Hagnýtt
- Farsæld barna
Sálfræðingar á fræðslusviði hafa útbúið hagnýtt efni fyrir foreldra undir yfirskriftinni Að takast á við óvissutíma. Efnið er gert aðgengilegt foreldrum á formi tveggja glærukynninga Hagnýt ráð til að viðhalda reglu og rútínu og Hagnýt ráð fyrir foreldra barna og ungmenna sem sýna óöryggi . Markmið fræðsluefnisins er að veita hjálpleg ráð sem geta nýst foreldrum að styðja við börnin sín á þessum óvissutímum. Það er okkar von að efnið sé aðgengilegt og nýtist sem flestum foreldrum.
Þær breytingar sem hafa orðið í okkar samfélagi vegna Covid-19 veirunnar hafa haft umtalsverð áhrif á daglegt líf barna og ungmenna. Sum börn og ungmenni eiga tiltölulega auðvelt með að takast á við þessar breytingar, á meðan þær reynast öðrum börnum og fjölskyldum erfiðar.
Sálfræðingar á fræðslusviði munu einnig bjóða uppá símaráðgjöf til foreldra barna í leik- og grunnskólum á meðan á samkomubanni stendur. Símaráðgjöfinni er ætlað að styðja foreldra við að aðstoða börnin sín að takast á við breyttar aðstæður á tímum Covid-19 veirunnar og fylgja fræðsluefninu eftir með almennri ráðgjöf til foreldra. Símtölin miðast við 10-15 mínútur.
Í símaráðgjöfinni verður lögð áherslu á
Þú getur óskað eftir símaráðgjöf með því að senda tölvupóst á simaradgjof@reykjanesbaer.is með upplýsingum um nafn þitt, kennitölu og símanúmer. Sálfræðingar á fræðslusviði munu hafa samband við tækifæri. Símaráðgjöfin verður fyrir hádegi á þriðjudögum og fimmtudögum á meðan samkomubanni stendur.