Árshátíð Stapaskóla

Árshátíð Stapaskóla verður haldin hátíðleg á sal skólans fimmtudaginn 31. mars næstkomandi. 

Í fyrsta sinn síðan skólinn tók til starfa í núverandi húsnæði verður árshátíðin haldin án samkomutakmarkanna og því mikið gleðiefni að geta boðið foreldrum og forráðamönnum að koma og njóta með okkur. 

Tímasetningar:

1. - 3. bekkur - Dagskrá hefst kl. 09:00 - nemendur mæta í sína tvennd 15 mínútum áður.

4. - 6. bekkur - Dagskrá hefst kl. 11:00 - nemendur mæta í sína tvennd 15 mínútum áður.

7. - 10. bekkur - Dagskrá hefst kl. 20:00 - húsið opnar 19:30. Að skemmtidagskrá lokinni hefst ball fyrir nemendur, frá klukkan 21:00 23:00. Nemendur fá leyfi í fyrstu tveimur kennslustundunum föstudaginn 1. apríl (ekki aprílgabb )

 

Nemendur sitja með sínum árgangi og kennurum á meðan skemmtidagskrá stendur. Að skemmtidagskrá lokinni eru börn í umsjá foreldra/forráðamanna. 

 

Árshátíðardagurinn er skertur skóladagur og er frístund lokuð.